Hvaða staðli við fylgjum
Vefurinn er byggður eftir WCAG 2.2 á stigi AA. Það er sami staðall og opinberum aðilum á Íslandi er skylt að fylgja samkvæmt lögum nr. 24/2021. Manhattan er einkafyrirtæki og fellur ekki undir þau lög, en við kjósum að fylgja staðlinum engu að síður.
Aðgengi er ekki eitthvað sem klárast í eitt skipti. Við prófum vefinn þegar við breytum honum og lögum það sem kemur í ljós.
Staðan í dag
Eftir því sem við höfum prófað uppfyllir vefurinn WCAG 2.2 AA. Við keyrðum sjálfvirkar prófanir á öllum síðum, á báðum tungumálum, í ljósri og dökkri stillingu og bæði á tölvuskjá og símaskjá. Engin frávik standa eftir.
Auk þess fórum við handvirkt yfir þau atriði sem sjálfvirkar prófanir ná ekki: að hægt sé að nota vefinn eingöngu með lyklaborði, að fókus sjáist alltaf og lendi ekki undir fastri valmyndinni, að engir gildruhringir myndist í valmyndinni á síma, að hnappar og hlekkir séu nógu stórir til að hitta á þá og að vefurinn þoli 320 díla breidd og 200 prósent leturstækkun án þess að texti skerðist.
Hvað við höfum gert
Litasamsetningar eru mældar. Allur meginmálstexti nær að minnsta kosti 4,5 á móti bakgrunni og stórar fyrirsagnir að minnsta kosti 3. Áherslulitir merkjavísisins eru ljósir og því er sérstök dekkri útgáfa af hverjum þeirra notuð þegar liturinn ber texta.
Öll virkni er aðgengileg með lyklaborði og fókusrammi sést á öllu sem hægt er að velja. Efst á hverri síðu er hlekkur sem stekkur beint í aðalefnið fyrir þá sem fletta með lyklaborði eða skjálesara.
Fyrirsagnir eru í réttri röð, myndir hafa lýsingu þegar þær bera merkingu og eru faldar skjálesurum þegar þær eru eingöngu skraut. Tungumál hverrar síðu er skilgreint í kóðanum svo skjálesarar beri textann rétt fram.
Hreyfingar á vefnum slökkva á sér sjálfkrafa ef stýrikerfið er stillt á minni hreyfingu. Vefurinn er bæði í ljósri og dökkri stillingu og man valið.
Þekktar takmarkanir
Nokkur myndbönd í verkefnahlutanum eiga eftir að bætast við. Þegar þau koma inn þurfa þau skjátexta. Þangað til birtast skilaboð í stað myndbandsins.
Á síðunni Hafa samband er kort frá Google. Það er utanaðkomandi efni sem við stýrum ekki að fullu. Heimilisfangið stendur einnig sem venjulegur texti við hliðina á kortinu svo enginn þarf að nota kortið til að finna okkur.
Ef þú rekst á eitthvað fleira sem virkar ekki viljum við heyra af því.
Ábendingar
Ef eitthvað á vefnum er þér ekki aðgengilegt, sendu okkur línu á info@manhattan.is eða hringdu í 899 4020. Segðu okkur hvaða síðu málið snýr að og hvað gerðist. Við svörum innan tveggja virkra daga og lögum það sem við getum lagað.
Þú getur líka notað eyðublaðið á síðunni Hafa samband.
Hvernig þetta var metið
Sjálfvirkar prófanir voru keyrðar með axe-core á öllum síðum vefsins í öllum samsetningum tungumáls, stillingar og skjástærðar. Litamælingar voru reiknaðar beint úr litagildum vefsins. Handvirku prófanirnar voru gerðar með lyklaborði í Chromium.
Þessi yfirlýsing á við um manhattan.is og var síðast uppfærð á dagsetningunni hér að ofan.
Fannstu eitthvað sem virkar ekki? Hafðu samband →