Hoppa í aðalefni
Manhattan · Stefnumótun

Stefnumótun er lykillinn að faglegum árangri.

Stefna er ákvörðun um hvert skal halda og hvernig. Við greinum stöðuna, skilgreinum markhópa og staðfærslu og leggjum upp þær aðgerðir sem skila árangri.

Vinnan byggir á áratuga reynslu af stjórnun markaðsstarfs hjá nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins. Við þekkjum bæði greiningarnar og það sem tekur við þegar á að framkvæma.

Stefnumótun okkar nær líka til vefsins. Vefur sem er smíðaður án stefnu verður sjaldnast annað en útlit. Við byrjum því á að ákveða hlutverk hans áður en nokkuð er hannað.

Þjónusta okkar í stefnumótun skiptist í eftirfarandi þætti:

  • 01

    Markaðsleg stefnumótun

    Markaðsleg stefnumótun felur í sér markaðs- og samkeppnisgreiningu, markhópagreiningu og markaðsmiðun, mótun staðfærslu vörumerkis og markaðsstefnu. Markaðsleg stefnumótun er sérsniðin að þörfum og stöðu hvers vörumerkis og hentar fyrirtækjum sem ekki búa yfir formlegri markaðsstefnu eða kjósa að uppfæra núverandi stefnu / grunn markaðsfærslu sinnar.

  • 02

    Markaðsáætlunargerð

    Markaðsáætlunargerð felur í sér skipulagningu markaðsaðgerða fyrir vörumerki sem ætla sér að sækja á markað. Markhópamiðun, samval markaðsráða, skipulagning markaðsaðgerða og kostnaðaráætlun markaðsstarfs er afurð markaðsáætlunargerðar og hentar sérstaklega vörumerkjum sem búa yfir markaðsstefnu en þurfa ráðgjöf við gerð aðgerðaáætlunar markaðsfærslu.

  • 03

    Markaðsgreiningar

    Markaðsgreiningar geta verið fjölmargar og fjölbreyttar greiningar á markaðs- og samkeppnisumhverfi fyrirtækja, markaðsrannsóknir, þjónustukannanir og aðrar markaðsmælingar sem hjálpa vörumerkjum að skilgreina stöðu sína á markaði og koma auga á tækifæri eða ógnanir sem hægt er að bregðast við áður en það er orðið of seint. Skipulegar og reglulegar markaðsgreiningar geta skapað vörumerkjum betri samkeppnisstöðu eða verið fyrirbyggjandi gagnvart mögulega versnandi stöðu á markaði.

  • 04

    Stefnumörkun vefs

    Stefnumörkun vefs snýst um að ákveða hvaða hlutverki vefurinn á að gegna áður en hann er smíðaður. Við skilgreinum markhópa, staðfærslu og þau skilaboð sem vefurinn á að koma á framfæri. Í framhaldinu leggjum við upp uppbyggingu vefsins, efnisstefnu og mælikvarða á árangur. Afraksturinn er stefna sem hönnun og smíði fylgja. Þetta hentar fyrirtækjum sem eru að endurnýja vefinn sinn eða reka vef sem skilar litlu.

  • 05

    Síðugerð

    Við hönnum og smíðum vefinn út frá þeirri stefnu sem lögð hefur verið. Vinnan nær yfir hönnun, textagerð, uppsetningu og opnun. Áhersla er á hraða, aðgengi og að vefurinn virki jafn vel í síma og tölvu. Vefirnir eru byggðir þannig að leitarvélar finni þá og að hægt sé að mæla árangurinn. Við sjáum um rekstur og viðhald eftir opnun ef þess er óskað.

Hefja samtal

Þarftu skýrari stefnu?

Hafðu samband og við svörum innan tveggja virkra daga.