Hoppa í aðalefni
Manhattan · Markaðsráðgjöf

Heildarlausnir í markaðs- og auglýsingamálum.

Við tökum að okkur markaðsstarfið sjálft, allt frá auglýsingaherferðum til stjórnunar markaðsdeilda. Vinnan byggir á áratuga reynslu af markaðsstarfi nokkurra af stærstu fyrirtækjum landsins.

Stefnumótun og greiningar eru sérstakur flokkur hjá okkur og eiga sína eigin síðu. Hér er það sem tekur við þegar stefnan liggur fyrir.

Hvort sem þú leitar markaðsþjónustu á mánaðarlegum grunni eða vegna tímabundinna sértækra verkefna getum við verið góður kostur. Við vinnum líka með markaðs- og auglýsingastofum sem þurfa, vilja eða geta úthýst hluta af sinni markaðsráðgjöf og greiningu.

Við kappkostum að taka aðeins að okkur viðskiptavini sem við vitum að við getum þjónustað með árangursríkum hætti og veitt fulla athygli, alltaf.

Stefna okkar er að veita ráðgjöf og þjónustu sem margfaldar virði sitt í gegnum skýra stefnu í markaðsmálum, markvissari og hagkvæmari markaðssetningu og nýtingu nýrra tækifæra.

Þjónusta Manhattan er margþætt og ávallt sniðin að þörfum þeirra verkefna sem við tökum að okkur:

  • 01

    Stjórnun auglýsingaherferða

    Skipulagning og stjórnun markaðssamskipta fyrir vörumerki á leið í auglýsingaherferð gagnvart markhópum með auglýsingum og öðrum kynningaraðferðum í gegnum fjölmiðla, vef- og samfélagsmiðla. Stjórnun auglýsingaherferða getur falið í sér mótun markaðsskilaboða gagnvart markhópum, umsjón með framleiðslu markaðsefnis, gerð birtingaáætlunar, samskipti við auglýsingamiðla og stjórnun kynningarstarfsins á meðan auglýsingaherferð stendur, aðlagað að hverju verkefni.

  • 02

    Skipulagning og stjórnun markaðsstarfs

    Stjórnun markaðsstarfs felur í sér að gengið er í stöðu markaðsstjóra, markaðsdeildar eða markaðsfulltrúa á hagkvæman, þægilegan og árangursríkan hátt sem færir fyrirtækjum áratuga reynslu í stjórnun markaðsstarfs. Hentar sérstaklega fyrirtækjum sem ekki eru með starfandi markaðsstjóra eða fyrirtækjum sem vilja framlengingu á markaðsdeild sinni með utanaðkomandi ráðgjöf í stjórnun markaðsstarfs.

  • 03

    CRM — Innleiðing viðskiptatengsla

    Stefnumarkandi stjórnun viðskiptatengsla (CRM) er hugmyndafræði sem gengur m.a. út á að kynnast viðskiptavinum, uppfylla þarfir þeirra og væntingar til að byggja upp langtímaviðskiptavinasamband og auka tryggð. Með áreiðanlega vitneskju um hvað viðskiptavinir vilja og á hverju þeir hafa áhuga eru vörumerki mun líklegri til þess að geta selt þeim vöru og þjónustu. CRM hjálpar þannig fyrirtækjum m.a. að afla viðskiptavina, þjónusta viðskiptavini og halda viðskiptavinum.

  • 04

    Viðburðastjórnun og virkjun vörumerkja

    Stjórnun viðburða felur gjarnan í sér hugmyndavinnu, undirbúning og framkvæmd viðburða af ýmsu tagi þar sem hagnýting vörumerkja er bestuð, hvort sem um er að ræða viðburð á vegum vörumerkisins eða virkjun vörumerkis á viðburði sem haldinn er af þriðja aðila, svo sem fyrir kostendur eða samstarfsaðila viðburða.

  • 05

    Markaðsfræðsla

    Fræðsla sem byggir á hátt í 30 ára reynslu í kennslu markaðsmála og stjórnunar á öllum stigum framhalds- og háskólanáms þar sem einstaklingum og fyrirtækjum býðst að bæta markaðsþekkingu sína með ýmsum námsleiðum.

  • 06

    Útflutningsráðgjöf

    Við upphaf útflutnings á vörum eða þjónustu er að mörgu að hyggja þar sem umhverfið er gjarnan mjög svo frábrugðið Íslenskum markaði. Ráðgjafar okkar búa yfir reynslu af útflutningi og undirbúningi hans, greiningar á mörkuðum, mat á þörf á aðlögun á vöru, upplýsingaöflun um lagalegt umhverfi sem snertir vöruna eða þjónustuna, val á samstarfsaðilum, dreifing, sala og markaðfærsla er meðal þess sem yfirleitt þarf að skoða.

Hefja samtal

Viltu vita meira?

Hafðu samband og við svörum innan tveggja virkra daga.